Skilmálar

Neðangreindir skilmálar gilda fyrir vefverslun Kjólar & Konfekt . Vinsamlegast kynntu þér þá vandlega áður en þú pantar vörur á www.kjolar.is

Kjólar & Konfekt áskilur sér rétt til að breyta reglum og skilmálum án fyrirvara. Öll verð á síðunni eru birt með fyrirvara um prentvillur.

Þegar þú verslar á www.kjólar.is getur þú valið á milli þess að sækja í verslun eða fengið pöntunina þína senda með Íslandspósti eða Dropp.

Við sendum frítt þegar verslað er fyrir 12.þús eða meira.

Þú getur valið að fá pöntunina þína senda beint heim með sendlaþjónustu Íslandspósts, póstbox eða á næsta pósthús. Einnig bjóðum við uppá sendingar með Dropp.

Við leggjum metnað í að varan berist til þín í fullkomnu ásigkomulagi. Þess vegna ábyrgjumst við vandaða pökkun og frágang vörunnar áður en hún fer frá okkur.

Verslunin okkar er á Laugavegi 92. Fyrirtækið sjálft heitir 3.september ehf og er staðsett á Hlíðarvegi 28 í Kópavogi.

Samkvæmt reglum um rafræn kaup, mátt þú hætta við kaupin innan 14 daga frá móttöku vörunnar. Skyldir þú vilja skila eða skipta vörunni sem þú verslaðir hjá okkur þá er það ekkert mál. Endursending vöru er á ábyrð og kostnað kaupanda nema um sé að ræða ranga/gallaða vöru. Allar endurgreiðslur verða að fara í gegnum vefverslun.

 

Lög og varnarþing 

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur netverslun www.kjolar.is  á grundvelli þessara ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu einungis vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum. Hægt er að leita til kærunefnd vöru og þjónustukaupa, Borgartúni 21. www.kvth.is

Reglugerð þessi er sett samkvæmt 28. gr., sbr. g-lið 1. mgr. og 5. mgr. 5. gr., laga nr. 16/2016, um neytendasamninga, og öðlast þegar gildi. 

Samkvæmt lögum um neytendakaup geta neytendur lagt fram kvörtun vegna galla innan tveggja ára frá því að söluhlutur er móttekinn eða fimm ára ef honum er ætlaður verulega lengri endingartími en almennt gerist um söluhluti.

Hér er staðlað eyðublað viljir þú falla frá samningi. https://www.neytendastofa.is/library/Files/Neytendarettarsvid/ey%C3%B0ubla%C3%B0_.docx

Endurgreiðslan þín

Þú færð endurgreitt með því að upphæðin verður lögð inn á greiðslukortið sem notað var við kaupin. Endursending vöru er á ábyrð og kostnað kaupanda nema um sé að ræða ranga/gallaða vöru. Allar endurgreiðslur verða að fara í gegnum vefverslun. Endurgreiðslan ætti að berast þér innan fimm virkra daga en það getur verið breytilegt milli kortafyrirtækja. Því miður getum við  ekki haft áhrif á hraða og verklag kortafyrirtækja. Hafir þú greitt með Netgíró verður krafan lækkuð um andvirði vörunnar.

 

Upplýsingar fyrir endursendingu

Kjólar & Konfekt

Laugavegi 92

101 Reykjavik

 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem að hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. 

 

Ást & Friður.